Hugmyndir að árgangaverkum í GÍH
1. bekkur:
Unnið af BFS úitkennslustarfshópi í GÍH (aðlagað af Ólafi Jósefssyni 2018)
1. bekkur:
- Nemendur vinna með bekkjartré. Farið verður út að hausti til að velja sér „bekkjartré“. Fylgst verður með trénu allt árið og breytingar sem það verður fyrir með hverri árstíð. Haldin verður lítil bók þar sem nemendur skrá breytingarnar.
- Nemendur týna fræ sem dottið hafa af trjám (t.d. af Hlyni, Reyni og öðrum trjám) og leggja þau í moldarbakka (úti). Fræin brotna niður yfir veturinn og ef allt fer að óskum spíra fræin að vori og hægt er að gróðursetja þessar plöntur að vori.
- Nemendur stunda matarviktun- mæla matarsóun. Lagt er til að þetta sé gert tvisvar á ári, t.d. í október og febrúar og svo gæti allur skólinn framkvæmt það einu sinni á ári. Hægt er að vinna markvisst með þetta t.d. í stærðfræði og eins í nokkurs konar „núvitund“, þar sem markmiðið væri að nemendur læri að sýna þakklæti, hófsemi og samkennd til annara landa sem minna eiga.
- Nemendur vinna verkefnið Græn vinátta. Þá fara nemendur upp í Landbúnaðar-háskóla Íslands, gamla Garðyrkjuskóla ríkisins, að Reykjum í Ölfusi til að sá fræjum, prikla og gróðursetja sumarblóm og kryddjurtir.
- Nemendur sinna tiltekt í útistofunni Lundi. Þeir týna rusl, snyrta umhverfið við útistofuna, lagfæra göngustíga, sinna viðhaldi á „skólastofunni“ og fleira. Lagt er til að nemendur fari í reglulegar ferðir þangað til að halda rusli í skefjum.
- Nemendur sinni mánaðarlega úti-umhverfishreinsun ásamt því að tæma endurvinnsluílát innanhúss. Undanfarin ár hefur 7. bekkur sinnt því verkefni í samstarfi við Hveragerðisbæ, sem greiðir nemendum ákveðna upphæð sem rennur í ferðasjóð nemenda. Vorferðalag nemenda í 7. bekk hefur verið ferð að Úlfljótsvatni þar sem þeir una við leik og störf í fallegri náttúrunni. (Hugmyndin er að færa umhverfishreinsunina niður í 6. bekk og fara með nemendur að Úlfljótsvatni að hausti til í 7. bekk).
- Nemendur vinni að margs konar hönnunarsamkeppnum, s.s. tengdu vatnsverkefni sem 6. bekkur hefur sinnt undanfarin ár, hönnun á bílum, blöðrubílum, flaugum, eldfjöllum og fleiru. (Vatnsverkefnið yrði fært upp 7. bekk í stað umhverfis-hreinsunarinnar). Nemendur setja niður kartöflur og gróðursetja sumarblóm að vori í samstarfi við Dvalarheimilið Ás og með heimilismönnum að Bæjarási.
- Nemendur sinni gróðursetningu í samstarfi við Skógræktarfélag Hveragerðis á degi íslenskrar náttúru, þann 16. september ár hvert.
- Nemendur hafa ekki ennþá fengið neinum föstum verkefnum úthlutað.
- Nemendur sinni vinnu við frágang í eldhúsi skólans í samstarfi við Hveragerðisbæ, sem greiðir nemendum ákveðna upphæð sem rennur í ferðasjóð nemenda.
Unnið af BFS úitkennslustarfshópi í GÍH (aðlagað af Ólafi Jósefssyni 2018)