Bylgjur og bylgjuhreyfingar
Efni og áhöld: Tölva, skjávarpi og spjaldtölvur eða fartölvur (auk útbúnaðarlista fyrir vettvangsferðir). Litlir steinar.
Í stuttu máli: Nemendur fara að aðliggjandi tjörn og gera tilraunir með bylgjur á vatni.
Viðfangsefni kennslunnar: Ýmsar bylgjur, s.s. hljóðbylgjur, bylgjur vegna jarðskjálfta og ljósbylgjur kynntar fyrir nemendum, en bylgjur á vatni og í sjó eru aðal viðfangsefnið.
Kveikja (Engagement)
1. kennslustund:
Könnunarleiðangur/útinám (Exploration)
2. kennslustund:
Vettvangsferð í næsta nágrenni skólans.
Skilningur (Explanation)
3. kennslustund:
Kafað dýpra (Elaboration)
4. kennslustund:
Kunátta metin (Evaluation)
7. eða 8. Kennslustund:
Annað: Útbúnaðarlisti
Spjaldtölvur
Viðeigandi hlífðarfatnaður
Efni og áhöld: Tölva, skjávarpi og spjaldtölvur eða fartölvur (auk útbúnaðarlista fyrir vettvangsferðir). Litlir steinar.
Í stuttu máli: Nemendur fara að aðliggjandi tjörn og gera tilraunir með bylgjur á vatni.
Viðfangsefni kennslunnar: Ýmsar bylgjur, s.s. hljóðbylgjur, bylgjur vegna jarðskjálfta og ljósbylgjur kynntar fyrir nemendum, en bylgjur á vatni og í sjó eru aðal viðfangsefnið.
Kveikja (Engagement)
1. kennslustund:
- Nemendur, 3 – 4 saman látnir fá vatn í skál eða bakka og beðnir að pota í vatnið og segja frá því sem þeir sjá og þeir látnir spá í af hverju vatnið hreyfist eins og það gerir.
- Umræður nemenda.
- Nemendur skrá hugmyndir sínar um hreyfinguna á vatninu og beðnir um að hugsa um öldur á vatni eða í sjó og spjalla um þær – hvað eru öldur? Nemendur skrá hjá sér hugmyndir sínar t.d. á hugtakakort.
- Nemendur vinna tveir og tveir saman og fá snærisspotta sem þeir strekkja á milli sín og eru beðnir að annar í einu kippi snöggt í spottann og skoði hvernig hann hagar sér á leiðinni til hins.
- Nemendur beðnir að skrá hjá sér hvernig spottinn hreyfist og hvort þeir haldi að það sé eitthvað sameiginlegt með hreyfingu vatnsyfirborðsins í skálinni og hreyfingu spottans. (Hugmynd tekin úr bók Þóris Ólafssonar, Bylgjufræði, 1. kafli: Bylgjur)
- Nemendur taka upp video af vinnu sinni (binda spottann fastan hér svo annar geti kippt og hinn tekið upp).
Könnunarleiðangur/útinám (Exploration)
2. kennslustund:
Vettvangsferð í næsta nágrenni skólans.
- Nemendum skipt í 3 – 4 manna hópa.
- Farið út með nemendur að tjörn.
- Nemendur hafa með sér steina, ca sem passa í lófa, i-pada til að taka videoklippur og myndir af því sem gerist þegar þeir henda steinunum í vatnið.
- Nemendur látnir kalla, mishátt og spurðir hvernig þeir haldi að hljóðið berist þannig að við heyrum það.
- Nemendur taka stuttar video klippur af köllunum.
Skilningur (Explanation)
3. kennslustund:
- Upprifjun á vettvangsferð og umræður um hana.
- Nemendum sýnd myndbönd um alls kyns bylgjur sem hafa áhrif á vatn, sjó og land (efni frá Hauki Arasyni á heimasíðu námskeiðsins) og nemendum kennd hugtök sem varða efnið, s.s. að vatn ferðast í tveimur víddum en strengur í einni vídd, bylgjubrot og bylgjubeygja og samliðun vatns.
- Nemendum sýnd myndbönd sem sýna þessa þætti.
- Bætt við hugtakakortið.
Kafað dýpra (Elaboration)
4. kennslustund:
- Nemendur fara í gagnvirkar æfingar í Phet interactive simulations forritinu eins og: Wave interference og Waves on a string. (Ætlaði líka að nota sound en það virkaði ekki).
- Nemendur velja sér nánar eitthvað eitt fyrirbæri sem þeir hafa verið að læra um og gera myndband um það.
- Haldið áfram að vinna myndbandsverkefni og séð til hvað þarf mikinn tíma í það.
Kunátta metin (Evaluation)
7. eða 8. Kennslustund:
- Kynningar nemenda í formi myndbandsverkefna sýnd.
- Námsmat kennara og nemenda:
- Nemendur meta ferlið sjálft (upplifunina) með annars vegar sjálfsmati og hins vegar með mati á hópvinnu.
- Kennari metur ferlið með símati og afurðina sjálfa (skilninginn) með matslista.
(Sjá nánar í fyrir kennara).
Annað: Útbúnaðarlisti
Spjaldtölvur
Viðeigandi hlífðarfatnaður