Hringrás vatns og hamskipti
Efni og áhöld: Spjaldtölvur og fartölvur, prímus, hitaþolið glerílát.
Í stuttu máli: Nemendur noti útiumhverfi til að fræðast um hringrásir vatns og hamskipti.
Viðfangsefni kennslunnar: Nemendur nota forþekkingu sína á vatni og byggja ofan á hana með samtölum, ferð út í náttúruna og fræðsluefni.
Kveikja (Engagement)
1. kennslustund:
Notast við spjallvinaaðferðina, þ.e. kennari dregur saman tvo og tvo til að ræða saman um málefnið sem kastað er fram. Eftir smá stund spyr kennarinn pörin um þeirra niðurstöður.
Könnunarleiðangur/útinám (Exploration)
2. kennslustund:
Vettvangsferð í næsta nágrenni skólans.
Koma í skilning um (Explanation)
3. kennslustund:
Kafað dýpra (Elaboration)
5. kennslustund:
Kunátta metin (Evaluation)
7. kennslustund:
(Sjá nánar í fyrir kennara).
Annað: Útbúnaðarlisti
Spjaldtölvur
Viðeigandi hlífðarfatnaður
Samstarfsverkefni ( Ólafur Jósefsson )
Efni og áhöld: Spjaldtölvur og fartölvur, prímus, hitaþolið glerílát.
Í stuttu máli: Nemendur noti útiumhverfi til að fræðast um hringrásir vatns og hamskipti.
Viðfangsefni kennslunnar: Nemendur nota forþekkingu sína á vatni og byggja ofan á hana með samtölum, ferð út í náttúruna og fræðsluefni.
Kveikja (Engagement)
1. kennslustund:
Notast við spjallvinaaðferðina, þ.e. kennari dregur saman tvo og tvo til að ræða saman um málefnið sem kastað er fram. Eftir smá stund spyr kennarinn pörin um þeirra niðurstöður.
- Kveikja: Nemendur beðnir um að ræða sín á milli mikilvægi vatns fyrir allar lífverur og spá í hvað þeir haldi að manneskja geti lifað lengi án vatns.
- Nemendur finna upplýsingar á Vefnum um hve lengi manneskja getur lifað án vatns.
- Nemendur vinna eftir KVL-aðferðinni (Guðmundur Engilbertsson, 2013) og kennari skráir svör nemenda í tölvu og sýnir á skjávarpa (allir hvattir til að tjá sig), þ.e. K(ann) og V(il vita).
Könnunarleiðangur/útinám (Exploration)
2. kennslustund:
Vettvangsferð í næsta nágrenni skólans.
- Farið að tjörn þar sem nemendur eru beðnir að skrá hjá sér allt sem þeir sjá við tjörnina og þeir beðnir að íhuga hvernig tjörnin hefur orðið til og íhuga og ræða saman um hringrás vatnsins – gera myndband um hugmyndir sínar um hringrásir vatns með myndum af tjörninni.
- Kennari tekur vatn úr tjörninni til frystingar seinna.
Koma í skilning um (Explanation)
3. kennslustund:
- Upprifjun á vettvangsferð og skoðað hvaða efni nemendur eru komnir með.
- Kennari styðst við efni frá Hauki Arasyni sem hann gaf upp í tengslum við námskeiðið Útikennsla og staðtengt nám og nefnist: Fáein orð um vatn og loft á ábendingar um frekara lesefni.
- Nemendur bent á efni á Vefnum eins og Vísindavefnum grein sem heitir Hvernig og við hvaða aðstæður myndast móða á gleri.
- Nemendum bent á síður og gagnvirkt efni eins og Phet; State of matter: Basics.
- Nemendum bent á að kynna sér efni af Vefnum.
- Unnið nánar að gerð myndbands og ef þurfa þykir, fara aftur að tjörn til að taka upp efni með nánari vitneskju um efnið og taka upp þegar kennari bræðir vatnið úr tjörninni sem hann tók úr henni áður og frysti, táknrænn gjörningurinn sem sýnir alla hami vatnsins út tjörninni.
Kafað dýpra (Elaboration)
5. kennslustund:
- Nemendur byrja að búa til mynd í i-movie forritinu á spjaldtölvum um efnið og nota efnið sem þeir tóku upp í vettvangsferðinni. Þeir mega fara út og taka upp meira efni ef þeim finnst þeir þurfa. Á myndbandinu þurfa öll hugtökin sem fjallað var um að koma fram og útskýringar á þeim.
- Kennari skráir nú í skjalið kann, vil vita - hef lært það sem nemendur geta bætt við eftir að hafa farið í gegnum ferlið.
- Lokahönd lögð á myndböndin.
Kunátta metin (Evaluation)
7. kennslustund:
- Kynningar nemenda.
- Námsmat:
- Nemendur meta ferlið sjálft (upplifunina) með annars vegar sjálfsmati og hins vegar með mati á hópvinnu.
(Sjá nánar í fyrir kennara).
Annað: Útbúnaðarlisti
Spjaldtölvur
Viðeigandi hlífðarfatnaður
Samstarfsverkefni ( Ólafur Jósefsson )