Til kennara:
Hafið ávallt í huga áður en farið er í útikennslu:
Fylgist með veðurspá ef útikennsla er fyrirfram ákveðin og sendið boð til nemenda og foreldra um að allir eigi að vera klæddir eftir veðri þann dag sem útikennsla og útinám fer fram.
Gott er að nemendur hafi kort af svæði á sér. Hægt er að útbúa nokkur kort, plasta þau og þannig koma þau að góðum notum.
Setjið nemendum skýrar reglur um viðeigandi hegðun á vettvangi.
Sýnið fyrirhyggju. Útbúið hættumat og farið yfir öryggisatriði sem gilda við útinám með nemendum áður en kennsla hefst. Sérstaklega þarf að hafa þessi atriði í huga við hættulegri aðstæður, t.d. þegar gengið er yfir götur/við götur, við vötn, ár og sjó, í holóttu eða stórgrýttu landslagi.
Athugið hvort öll áhöld séu með, það getur kostað dýrmætan tíma að gleyma mikilvægum hlutum eða efni.
Hafið ávallt á ykkur bakpoka eða tösku með sjúkrakassa, mikilvægum símanúmerum og jafnvel mat og drykk ef áætlað er að vera úti í lengri tíma.
Nemendur gætu haft með sér þunnan bakpoka með skriffærum, nesti og aukafötum ef þess þarf.
Gefið ykkur tíma til að minna á mikilvægi þess að ganga vel um nánasta umhverfi með því að biðja nemendur um að valda sem minnstu raski á meðan útikennslu stendur.
Úr lokaverkefni frá Guðmundínu Arndísi Haraldsdóttur