Úr lokaverkefni Margrétar Jóhannsdóttur, Ólafs Jósefssonar og Sigurbjargar Alfonsdóttur: Útfærsla á staðtengdu námi og námsmati.
Skógurinn:
Viðfangsefni kennslunnar: Nemendur fræðast um hvernig og hvers vegna trjáplöntur (á Íslandi) leggjast í dvala yfir vetrartímann. Þeir skoða trjáplöntur, á skólalóð/í nágrenni skólans, sem eru að undirbúa sig/komnar og útbúa stutt myndband þar sem þeir skýra þetta ferli.
Kveikja (Engagement)
1.kennslustund:
Könnunarleiðangur/útinám (Exploration)
2.-3. kennslustund:
Koma í skilning um (Explanation)
4.-5. kennslustund:
Kafað dýpra (Elaboration)
6.-7. kennslustund:
Kunnátta metin (Evaluation)
8. kennslustund:
Viðfangsefni kennslunnar: Nemendur fræðast um hvernig og hvers vegna trjáplöntur (á Íslandi) leggjast í dvala yfir vetrartímann. Þeir skoða trjáplöntur, á skólalóð/í nágrenni skólans, sem eru að undirbúa sig/komnar og útbúa stutt myndband þar sem þeir skýra þetta ferli.
Kveikja (Engagement)
1.kennslustund:
- Nemendur horfa á myndbandið One year in 2 minutes (Solheim, Erik, 2011). Myndbandið (lághraðamynd/hikmynd) er tekið upp í Osló, Noregi, og sýnir árstíðaskipti í trjálundi og þær breytingar sem verða á (trjá)gróðri á einu ári.
- Að loknu áhorfi spyr kennari nemendur hvað þeir halda að gerist/hafi gerst í framhaldinu? Hvernig lifa og nærast plöntur eins og tré? Hvaða efnasamband er meginuppistaða í lífi trjáa? Hvað gera trén til að lifa af kulda og frost svo við (og aðrar lífverur) fáum notið þeirra næsta sumar? Hvers vegna þurfa þær þess?
- KVL-aðferðin (Guðmundur Engilbertsson, 2013) nýtt til að skrá svör nemenda (allir hvattir til að tjá sig), þ.e. K(ann) og V(il vita). Kennari skráir á töflu, í ritvinnsluskjal (sem er varpað á tjald) eða smáforritið Padlet (stafræn korktafla) er nýtt til verksins.
- Kennari segir nemendum frá verkefninu sem þeir eiga að vinna í kjölfar þessa.
Könnunarleiðangur/útinám (Exploration)
2.-3. kennslustund:
- Farið út á skólalóð/í trjálund að skoða tré sem eru að búa sig undir vetrardvala.
- Nemendur, í tveggja til þriggja manna hópum (kennari velur), að taka myndir á spjaldtölvurnar sínar af trjám og einstökum hlutum þeirra. Myndirnar eiga þeir síðar nota til að gera myndband í iMovie um viðfangsefnið. Nemendur eru hvattir til að taka alls kyns myndir, t.d. nærmyndir
- Þeir ræða saman um viðfangsefnið, nota hugtök sem þeir þegar þekkja (rætur, stofn o.s.frv.) og setja fram tilgátu(r). Tilgátur eiga þeir að skrá hjá sér í spjöldin og punkta hjá sér helstu atriði leiðangursins (nota Notes).
- Áður en haldið er út eru nemendur minntir á að ganga vel um, fylgja skólareglum og (reyna að) njóta útiverunnar.
- Kennari gengur á milli hópa, fylgist með vinnu og samræðum nemenda og skráir á matslista.
Koma í skilning um (Explanation)
4.-5. kennslustund:
- Þegar inn er komið/í næsta tíma hlustar kennari á tilgátu hvers hóps. Þeir eiga jafnframt að skrá þær sem og stutta lýsingu á könnunarleiðangrinum á vinnublað/í vinnubók eða Pages í spjaldtölvu.
- Því næst biður kennari nemendur um að fara inn á Visindavefinn og skrá í leitarstrenginn tvö til þrjú lykilorð, t.d. tré og vetrardvali. Þá ættu þeir að finna færsluna „Hvað þýðir það að tré séu í vetrardvala?“. Þegar hver og einn nemandi hefur lesið hana yfir ræða kennari og nemendur um ný hugtök og útskýringar sem koma fram í færslunni, t.d. um ískristalla sem verða eins og nálar og sykrur og prótín sem breyta vökvanum inni í trjánum í einskonar frostlög. (Þröstur Eysteinsson, 2005).
- Hver hópur (og nemandi) kemur sér saman um og skrifar í kjölfarið á vinnublað/í vinnubók eða Pages niðurstöðu viðfangsefnisins.
- Niðurstöðurnar eiga hóparnir svo að nýta sér þegar þeir búa til stutt myndband, úr völdum myndum könnunarleiðangursins (5-7 myndir), þar sem þeir útskýra hvernig trjáplöntur búa sig undir vetrardvala og lifa hann af. Hver hópur sendir kennara myndbandið og er það notað sem hluti af námsmati.
Kafað dýpra (Elaboration)
6.-7. kennslustund:
- Hver nemandi á gúgla á netinu og finna tvö dæmi um plöntur og/eða dýr sem leggjast í dvala og beita til þess áþekkum aðferðum og trén.
- Hann skrifar stuttan texta um niðurstöður sínar á vinnublað/í vinnubók eða Pages.
Kunnátta metin (Evaluation)
8. kennslustund:
- Fyrir utan matið sem áður hefur verið nefnt leggur kennari fyrir nemendur námsmat í Nearpod (forrit). Þeir svara fjölvalsspurningum (þekkinga-) og opnum spurningum sem reyna á skilning og hæfni viðfangsefnisins.
- Að auki þurfa nemendur að svara nokkrum spurningum (í sama Nearpod námsmati) þar sem þeir meta eigið nám.