Plöntusöfnun og greining:
Verklýsing:
Plöntusöfnun:Reyndu að velja þér þurrt veður.
Gangtu yfir sem fjölbreyttast svæði og safnaðu plöntum í blóma. Mjög mikilvægt er að plantan sé bæði með blóm í blóma og heillegt laufblað helst fast við stilkinn.
Taktu þér góðan tíma, ekki bara týna það sem hendi er næst. Því meira sem þú vandar þig við að safna plöntunum því betra verður safnið þitt. Veldu þér þá plöntu sem best hentar t.d. hvað varðar stærð ( oft er erfitt að koma fyrir stórum plöntum í þurrkun).
Gangtu frá plöntunum í þurrkun strax að söfnun lokinni ef mögulegt er.
Þurrkun:
Verklýsing:
- Plöntunum má safna hvenær sem er í sumar. Það er skynsamlegt að gera það í sumar en þó er alveg tími til að safna í haust eftir að skóli byrjar ef þið eruð skynsöm og dugleg þá.
- Þú verður að skrifa hjá þér dagsetningu þegar plantan er týnd og staðsetningu. Ekki er nauðsynlegt að setja nákvæman GPS punkt á staðinn en nokkurnvegin hvar, t.d. Staðarfell í Lóni, Heinaberg á Mýrum, Geitafell í Nesjum o.s.fr.
- Ekki þarf að vera búin að greina plönturnar fyrr en í skólanum, þó getur verið sniðugt að fá einhvern plöntufróðan í fjölskyldunni t.d. afa eða ömmur til að segja ykkur íslensku nöfnin, þá verður auðveldara að finna fulla greiningu í haust.
- Passið vandlega að á plöntunni sé blómstur og laufblað annars dregst frá einkunninni
- Þið þurfið að finna 20 blómstrandi plöntur og passa að það séu ekki útlendar garðplöntur.
- Farðu vandlega eftir leiðbeiningunum hér að neðan.
Plöntusöfnun:Reyndu að velja þér þurrt veður.
Gangtu yfir sem fjölbreyttast svæði og safnaðu plöntum í blóma. Mjög mikilvægt er að plantan sé bæði með blóm í blóma og heillegt laufblað helst fast við stilkinn.
Taktu þér góðan tíma, ekki bara týna það sem hendi er næst. Því meira sem þú vandar þig við að safna plöntunum því betra verður safnið þitt. Veldu þér þá plöntu sem best hentar t.d. hvað varðar stærð ( oft er erfitt að koma fyrir stórum plöntum í þurrkun).
Gangtu frá plöntunum í þurrkun strax að söfnun lokinni ef mögulegt er.
Þurrkun:
- Reynið að týna plönturnar í þurru veðri. Ef plantan er blaut t.d. af rigningu láttu hana þá liggja (jafnvel yfir nótt) á eldhúspappír helst á ofni.
- Fáðu þér dagblöð sem þú ætlar að pressa / þurrka plönturnar í. Ef þú hefur engin dagblöð þá gætir þú notað gamla símaskrá í staðin.
- Vandaðu þig við að leggja plöntuna eins slétta og þú getur á blaðið. Þetta atriði skiptir miklu máli þar sem þú þarft að sjá vel bæði lit og lögun laufblaða og krónublaða, plöntunnar.
- Leggðu annað blað yfir og settu í pressu inni í / undir, þungum bókum eða öðru sem hentar.